Ég er nú bara einu sinni þannig gerður að þegar ég sef þá sef ég bara og það er fátt sem truflar það og ekki margt sem vekur mig nema ef vera skildi konan. Konan hefur nefnilega tekið það að sér að stilla klukkuna á heimilinu og pota mér framúr á morgnana. Nú þegar hún er í orlofi hefur það komið í minn hlut að koma skvísunni í skólann og Spiderman I í leikskólann. Ég held að ég standi mig bara ágætlega í því þó ég fái stundum að heyra það að fatavals-sjatteringarnar séu kannski ekki alveg fullkomnar og það gangi ekki að senda skvísuna í skólann með slegið hárið dag eftir dag. En þau komast í skólann og það er nú fyrir öllu.
Spiderman II er ekki alveg að fatta það að það eigi að sofa eins og pabbinn á nóttunni. Ekki það að ég verði mjög var við það því ég vakna nú ekkert þó hann sé að umla þetta og ég hef ekki græjurnar til að sinna hans brýnustu þörfum. Það kemur þó fyrir að konan verður ansi þreytt á þessu brölti og pikkar (varlega orðað) þá í mig og biður mig um að aðstoða. Það er ekkert nema sjálfsagt mál að sinna drengnum, rétta honum snuddur, færa hann milli rúma, strjúka honum eða vagga í svefn. Ég get alveg og hef alveg gert þetta nokkrum sinnum. Það óhuggulega við þetta allt saman samt er að ég man yfirleitt ekki eftir að hafa staðið í þessu stússi daginn eftir.
Spiderman I á það til að lauma sér uppí um miðjar nætur. Skiptunum fer fækkandi því sú var tíðin að drengurinn náði ekki að sofa heila nótt í sínu herbergi og kom þá gjarnan oftar en einusinni yfir í okkar herbergi. Þetta truflar mig ekki því ég sef bara. Konan sefur ekki eins vel við þessar aðstæður og á það þá til að pikka (varlega orðað) í mig og biður mig að fara með drenginn yfir í hans eigið herbergi. Það er minnsta málið og ég sé alfarið um þessa flutningsþjónustu á mínu heimili. Það óhuggulega við þetta allt saman samt er að ég man yfirleitt ekki eftir að hafa staðið í þessu stússi daginn eftir.
Skvísan er nú eins og pabbi sinn og sefur nú bara fastar ef eitthvað er. Það þarf ansi mikið til þess að hún vakni upp og það þarf ansi mikið til að vekja hana á morgnana yfir höfuð.
Liðna nótt lenti ég hins vegar aldeilis í því. Spiderman I laumaði sér yfir um leið og Spiderman II vaknaði til að fá sér sjúss. Við þetta tækifæri pikkaði (varlega orðað) konan í mig og bað mig um að fara með Spiderman I yfir í sitt herbergi. Það sem ég heyrði var hins vegar 'Klukkan er 20 mínútur yfir' sem á venjulegum degi þíðir 'Drullaðu þér framúr karl og vektu krakkana í skólann'. Það skipti engum togum, ég strunsaði með drenginn yfir í hans herbergi og óð inn í herbergi skvísunnar og vakti hana og sendi hana fram til að bursta tennur og hafa sig til. Þegar hún var vöknuð og farin fram og búin að bursta og svona kom konan fram og spurði mig hvað í ósköpunum ég væri að gera, klukkan var 04:00.
Það er nefnilega ekki bara erfitt að vekja mig... ég er alveg kex þegar ég er svona nývaknaður eða ekki vaknaður.
Þ.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2010-01-02
Gleðilega síða hárið...
Kæru vinir... megið þið og ykkar eiga gleðilegt 2010.
Spiderman er samur við sig. Á aðfangadagsmorgun fékk hann gat á hausinn. Var í reipitogi við vin sinn og fékk spottaendann með járnsylgju í augað. Við þurftum að klemma á honum augnlokið því þau eru ekki oft saumuð hvort eð er. Glóðurauga þessi jólin hjá Spiderman.
Um daginn kom hann hlaupandi, hoppandi og skoppandi upp í sófa til mín. Vandamálið var að lendingarsvæðið sem hann hafði var ca 3 cm. Auðvitað hrundi hann úr sófanum og auðvitað lenti hann á flakkaranum okkar og auðvitað voru allar fjölskyldumyndirnar þar inni og auðvitað er diskurinn ónýtur. Karlinn átti náttúrulega afrit af öllu... nema júlí og ágúst í fyrra (2009 er í fyrra). Kunnugir vita að í júlí kom 3ja sílið (ekki búinn að fá viðurnefni) og ég geng því með krosslagða fingur allan daginn og vona að NASA nái að redda þessum myndum.
Spiderman er hrifinn af flugeldum. Systir hans er það líka. Munurinn á þeim er samt sá að skvísan er varkár. Spiderman tapaði sér gjörsamlega á gamlárs. Hann ætlaði í allar sprengjurnar og helst allar í einu. Það var alveg sama hvað ég sagði honum oft að taka ekki sprengjur nema að spyrja mig og að hann ætti að láta eldsýturnar vera, hann var alltaf kominn inn í skúr að sækja meira. Kvöldið var samt slysalaust en það munaði litlu á nýjársdag þegar hann komst í rokeldspýturnar og kveikti í einni inni í bílskúr á meðan hann var að bíða eftir mér... karlinum brá heldur betur þegar hann kom að honum í reykfylltum skúrnum umvafinn skoteldaafgöngum.
Á jólaballi um daginn leið honum ekki sem best, var eitthvað slappur, vildi ekki vera með. Það er frekar ólíkt honum og við stíluðum því inn á það að hann væri veikur. Þegar lætin róuðust og flestir voru komnir í veitingar ákvað ég að fara með hann inn í salinn þ.s. tréið stóð. Við leiddumst þarna eftir ganginum feðgarnir og fórum hægt yfir. þegar við komum inn í salinn, sleppti hann hendinni á mér og skellti sér í eitt handahlaup áður en hann labbaði sér rólega til mín aftur og við settumst niður og spjölluðum um jólasveinana.
Svona er Spiderman.
Þ.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2009-11-16
Redneck ferð ársins...
Það var mikill spenningur í hópnum þegar lagt var af stað úr bænum kl 18:11 síðastliðið fimmtudagskvöld. Búið að redda pallbíl með stærsta bassaboxi sem sögur fara af, pakka haglabyssunum og gommu af skotum í skottið, hlaða talstöðvarnar og gps tækin og koma við í búðinni og kaupa kjöt og kartöflur. Grænmeti er ekki liðið í redneck-ferðum.
I-poddinn tengdur í græjurnar og rúllað af stað undir dynjandi rocktónlist og hatturinn á sínum stað. Ferðin gekk vel þrátt fyrir smá slæd og hálku og eftir að hafa séð einn á hvolfi í Skagafirðinum var aðeins slegið af olíugjöfinni.
Ræs 8:30 á föstudegi og nestið smurt og skjálfti í hægri vísifingri. Hraunið í Mývatnssveit skartaði sínu fegursta nema skortur var á fuglum. Sáum þó nokkra og eitthvað var plaffað. Eftir langan dag og allt uppí 22km göngu var farið heim með aflann og brunað beint í Jarðböðin. Það er fátt betra en að láta líða úr sér eftir góðan dag. Auðvitað var svo grillað um kvöldið og mikið af sögum flugu á milli fram á nótt.
Ræs 8:30 á laugardegi og nestið smurt. Skjálftinn í hægri vísifingri enn til staðar. Nú var ákveðið að fara austur fyrir hraunið og upp í fjöll. Keyrðum austur fyrir Þrengslaborgir og suður í Bláhvamm. Ekkert eðlilega magnað landslag. Eitthvað sáum við minna af fugli en seinnipartinn sáum við 30 fugla í hóp lengst upp í fjalli. Við á eftir. Þegar við vorum tæplega hálfnaðir leit ég niður og gjörsamlega fraus. Ég komst ekki áfram og ekki til baka. Hlíðin var svo snarbrött. Ef ég hefði rúllað niður hefði ekkert stoppað mig, ég hefði farið alla 300 metrana og varla verið að skrifa þetta núna. Ég hafði mig þó að lokum niður en þetta var ekki eins mikið redneck og ferðin gaf til kynna. Við enduðum svo í lóninu aftur um kvöldið og grilluðum.
Ræs 9:30 á sunnudegi og pakkað í bílinn. Við getum huggað okkur við það að koma heim með u.þ.b. 35 kg af kjöti til baka þó að megnið af því hafi einhvern tíma borið ull en ekki fiður.
Frábær ferð engu að síður og nú er maður alveg veikur í að komast í meiri fugl... aftur og aftur og aftur.
Þ.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2009-11-10
Kom ekki tómhentur heim
Þá kom aððí...
Karlinn búinn að fara fyrstu rjúpnaveiðiferðina...
Fór með 2veim grönnum upp á Holtavörðuheiði á laugardaginn. Við okkur blasti svarta þoka en ákáðum að það yrði gott veður síðar um daginn og lögðum af stað í fjallið. Við vorum með 5 GPS tæki þ.a. við reiknuðum með að rata til baka, einhvernveginn og það hafðist.
Ferðin var svona ljómandi. Það rættist úr veðrinu, þokan tók sig og fullt af fugli (sérstaklega þarna fyrst og síðast). Ég er nú ekki vanur fjallgöngum svona í seinni tíð og þetta tók töluvert í... tæpir 15 km í labbi og rúmlega 800 m hækkun í snjó (hörðum sem betur fer) og stórgrýti. Ég hefði helst viljað skilja bæði hnéin eftir uppi á fjalli og vinstri nárann í austurhlíðinni, en það var ekki í boði.
Önnur rjúpnaveiðiferðin er í skipulagningu. 4ra daga ferð norður í Mývatnssveit með 'gæd'. Það er eins gott að maður nái í jólamatinn því þó ég hafi ekki komið tómhentur heim þá náði ég ekki í matinn fyirr alla. En skotnýtingin er enn í lagi þrátt fyrir að ég hafi nú ekki stundað þetta og ekki hef ég farið á æfingasvæðið í þessu sporti frekar en golfinu... 30%
Þ.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2009-11-03
Rjúpan skeit á bílinn...
Fjölskyldan gerði sér (nokkura) daga mun í síðustu viku og skellti sér í bústað á Flúðum. Það er ekki eins og þetta hafi verið í fyrsta sinn sem við tökum okkur bústað þar á leigu enda yndislegt með afbrigðum að njóta lífsins í þessari kyrrlátu sveit. Sílin hamast upp um fjöll og firnindi og konan leggur sig fram við að elda sérstaklega góðan mat handa karlinum (man reyndar ekki til þess að hafa fengið eitthvað annað en reglulega góðan mat hjá frúnni - sem er gott).
Það er tvennt sem stendur uppúr eftir þessa ferð fyrir utan þetta venjulega afslappelsi og matarát.
Annars vegar var það allur rjúpnafjöldinn sem herjaði á bústaðinn og nágrenni. Það var ekki þverfótað fyrir þessum steikum í sveitinni. Þetta er bæði gott og vont. Gott af því að maður getur verið nokkuð viss um að það sé nóg af þessum fugli um þessar mundir og vont af því að nýliðin helgi var fyrsta leyfilega veiðihelgin á árinu og ég í fjölskylduferð í bústað. Eins og glöggar lesendur hafa ekki látið fram hjá sér fara öðlaðist ég veiðiréttindi í haust auk réttinda til að meðhöndla skotvopn og var því ekki til friðs mig klæjaði svo að komast í veiði... en nei ekki þessa helgina. Til að kóróna svekkelsið vaknaði ég á sunnudagsmorguninn og leit út í blíðviðrið og sá að rjúpnafjölskylda hafði setið á tengdamömmuboxinu mínu og skitið all hressilega... bara svona til að nudda saltinu.
Hins vegar var það Spiderman I sem átti enn eitt gullkornið. Þannig var að faðirvorið hafði eitthvað gleymst í kvöldverkunum í sveitinni hjá okkur feðgum en mamman ætlaði að sjá til þess að halda guðrækninni við. Spiderman I var eitthvað latur við þetta og eftirfarandi samtal átti sér stað:
Spiderman I: 'Er Guð ekki bara í Hafnarfirði?'
Mamma: 'Nei elskan, Guð er alls staðar'
Spiderman I (hugsar): 'Vá, er hann svona stór?'
Ætli það sé ekki best að klikka svo út með eftirfarandi texta úr leikskólauppfærslu Spidermans I á ABBA söngleiknum Mamma Mía:
'Mamma Mía, datt í drullupoll
Æ, æ, hvernig kemst hún uppúr?'
Þ.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er svo merkilegt að maður er alltaf að finna eitthvað nýtt á veraldarvefnum.
Nýjasta uppgötvun mín er 'offissíjal' heimasíða Tom Waits (tomwaits.com). Ég var einhvern tíma búinn að setja hana í 'feivorits' þ.a. ég er eiginlega að uppgötva sama hlutinn aftur nokkrum árum síðar. Þessi síða er alveg mögnuð og það eina sem vantar inná hana er að leyfa manni að niðurhala lögunum sem þó er hægt að spila, eitt í einu reyndar en það er alveg ótrúlegt úrval laga sem hægt er að spila. Þar fyrir utan er alls konar fróðleikur og fréttir á síðunni og hægt að skoða 'mjúsikk-vídeó' og allt. Rúsínan í pullunni er svo frítt download af nokkrum nýjum lögum... eins konar 'tíser' fyrir nýjustu plötuna Glitter and Doom Live.
Á síðunni má sjá að kappinn hefur gefið út einar 23 skífur og ég sem hélt að ég væri alvöru vifta (e. fan) en ég held að ég eigi bara 6 eða 7 þeirra.
Þ.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2009-10-14
Vinur minn Yasser Arafat
Vinur minn gæti verið Yasser Arafat. Ég uppgötvaði þetta eftir að hafa spjallað aðeins við hann í gær. Sagan segir að Arafat hafi aldrei sofið á sama stað 2vær nætur í röð vegna hræðslu við banatilræði andstæðinga sinna. Vinur minn er nú kannski ekki svona paranojaður en hann á kost á því að sofa í mismunandi herbergjum í húsinu sínu alla vikuna án þess að þurfa að sofa í sama herbergi 2 nætur í röð. Ég stakk upp á því við hann að hann legði þetta til við konuna sína. Hann gæti undirbúið þetta vel, þóst halda að einhver væri að fylgjast með sér og gert sér upp alls konar paranoju og svo upp úr þurru leggja þetta til...
'Heyrrru essskan, getum við skipt um herbergi milli nátta?'
Hvernig ætli þetta komi út?
Ég er virkilega spenntur fyrir þessu?
Vona að hann láti verða af þessu og taki svo mynd af konunni þegar hann styngur uppá herbergja niðurröðuninni... hann verður nefnilega að setja þetta upp í excel...
mánudagur = herbergi 1
þriðjudagur = herbergi 2
osfrv.
Nú ef hann verður leiður á þessu getur hann alveg eins notað excel til að gefa sér random tölu, svona eins og þegar eðlisfræðikennarinn okkar í MR var að velja okkur upp á töflu í gamladaga.
Hann heitir Simmi og var í sundlaugablárri peysu.
Þ.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2009-10-06
Það er þetta með snjóinn
Í gærmorgun átti ég í rökræðum við Spiderman I um snjó. Af því að það var kalt og af því að það var ísing á bílnum þegar við lögðum af stað, þá var hann alveg viss um að snjórinn kæmi. Ég var að reyna að segja honum að við þyrftum kannski að fylgjast aðeins með veðurfréttunum til að fá hugmynd um hvort eða hvenær snjórinn kæmi, því þó það væri kalt og þó það væri ís á bílnum væri nú samt ekkert víst að það kæmi líka snjór. En nei hann var harður á því að snjórinn kæmi þennan sama dag og takið eftir því að við vorum að ræða þetta í gærmorgun!!
Skemmst er frá því að segja að Spiderman I hafði aldeilis rétt fyrir sér og það þarf ekki að taka fram að hann var frekar kátur með þetta allt saman. Ég rétt náði að draga hann inn í kvöldmat rúmlega 1900 og þá var hann búinn að vera sleitulaust úti frá því að hann kom úr leikskólanum. Það þarf heldur ekki að taka fram að drengurinn var alsæll, búinn að fara í snjókast með félögunum og sjálfsagt hafa þeir gert einhver prakkarastrik líka, eitthvað sem maður fær ekki að heyra af... Vona bara að mér hafi tekist að kenna honum að borða ekki gula snjóinn.
Skvísan er nú ekkert minna hrifin af snjónum, þó hún sé orðin svo mikil skvísa að það tekur 40 mín á morgnana að velja sér föt. Hún er orðin hættulega 'pikkí' á það sem hún vill vera í og það er ekki alltaf nákvæmlega sama dress og mamma hennar hefði kosið en sá gamli lætur sér yfirleitt fátt um finnast. Það er helst að hún er ekkert endilega að velja föt eftir veðri og vindum og getur valið hnausþykka galla í sól og blíðu en helst ekkert nema pils þegar frost og snjór eru úti. Ætli hún verði þá ekki bara að læra það 'ðe hard vei' að stundum þarf maður að taka tillit til hitastigsins við val á klæðnaði. Það vona ég allaveganna.
Spiderman II gerir ekkert annað en að stækka og þroskast. Hann heldur orðið sæmilega haus þó að maður sé kannski ekki farinn að stilla honum upp í setstöðu alveg sjálfum. Hann lætur sér fátt um finnast um snjóinn en það kemur örugglega fyrr en mann grunar.
Þ.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2009-09-28
Sindri Svend
Litli kútur fékk nafnið Sindri Svend við hátíðlega athöfn í gær. Foreldrarnir eru ægilega stoltir, ekki bara af honum heldur líka hinum sílunum. Spiderman I fékk að segja nafnið á Spiderman II og skvísan hélt á honum undir skírn og söng svo einsöng fyrir alla. Það var frábært.
Einni gátunni færra.
Þ.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2009-09-25
Luftslottet som sprängdes
Ég get alveg viðurkennt að ég hef ekki verið þekktur í gegnum árin fyrir að lesa mikið af bókum. En með aldrinum hefur mér lærst að það er hin besta skemmtan. Iðulega næ ég nokkrum blaðsíðum áður en ég lognast útaf á kvöldin. Skemmtilegast finnst mér að lesa góðar spennusögur og nú er ég fastur í Stieg Larsson.
Ég fékk fyrstu bókina 'Karlar sem hata konur' í jólagjöf í fyrra og las hana 'med det samme'
Aðra bókina 'Stúlkan sem lék sér að eldinum' fékk ég á enskri hljóðbók og hún rúllaði í spilaranum nótt eftir nótt (þurfti svolítið að spóla til baka þegar ég sofnaði út frá sögunni)
Og þegar mér áskotnaðist þriðja bókin 'Loftkastalinn sem sprakk' var ég ekki lengi að grípa tækifærið. Hún er reyndar á sænsku og það hægir aðeins yfirferðina. Vona bara að ég verði búinn áður en myndin kemur.
Fyrsta myndin var nefnilega snilld og ég er aðeins búinn að sjá úr annarri og hún verður ekki síðri. Meiri hasar og meiri hraði en fyrsta sagan býður uppá.
En rosalega getur maður verið kex...
Þ.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

