2007-08-30
Stórafmæli - tengdó 60
Í gær var haldinn mikill fagnaður til heiðurs tengdaföður mínum sem varð sextugur 29.08
Meðfylgjandi er talan sem ég hélt, nöfnum hefur verið eytt út af einskærri tillitssemi við þá sem koma við sögu:
Kæri afmælis, afmælisfrú, afmælisbörn, afmælisbarnabörn og afmælisgestir.
Fyrir ykkur sem þekkið ekki vel til, þá heiti ég Þórir og er tengdasonur afmælis.
Leiðir okkar afmælis lágu fyrst saman fyrir um 15 árum svo aftur fyrir um 14 árum og loks endanlega fyrir 11 árum. Það var samt ekki alfarið honum að kenna að þetta tók svona langan tíma, dóttir hans spilaði stóra rullu í þeim Dallas.
Ég verð að byrja á því að viðurkenna það hér og nú að ég þoli ekki tannlækna. Ég er einn af þeim sem liggur með hælana og herðablöðin í stólnum og næ bara að opna örlitla rifu og og ef þið haldið að ég sé stífur af stressi því ég ákvað að halda þessa ræðu fyrir framan 150 manns, þá er það misskilningur. Mér finnst bara óþægilega mikið af tannlæknum hérna inni.
Reynsla mín af karlinum er annars afar góð, hann er ekki mikið að æsa sig yfir hlutunum, þó að konan haldi kannski öðru fram, hann er vinnusamur, þó að konan myndi kannski þiggja meiri aðstoð á ryksugunni, hann er hnyttinn, þó að konunni finnist hann kannski segja alltaf sömu brandarana. En hávaxinn er hann ekki, þó að konunni finnist það kannski.
Ég hef fengið að njóta gestrisni og ástar þessara hjóna öll þessi ár og ég er afar þakklátur. Þessi tala er eins konar upprifjun á nokkrum hlutum sem ég hef tekið eftir í fari karlsins í gegnum tíðina.
Afmælis og eldamennskan
Afmælis hefur gaman að því að búa til góðan mat og nóg af honum. Óskrifaðar reglur heimilisins eru að eiga meira en nóg ef einhver er að koma í mat. Ekkert er neyðarlegra en að vera búinn með matinn og gestirnir ekki saddir. Hjónin kaupa því alltaf 2-4 skömmtum of mikið af öllu. Fyrstu vikurnar mínar í fjölskyldunni voru mér afar erfiðar. Í fyrsta lagi þá er ég mikill matmaður, ég borða nánast allt og mikið af því. Í öðru lagi aldist ég ekki upp við það að grillað væri mánudaga, þriðjudag, miðvikudaga, fimmtudag, föstudag, laugardaga og sunnudaga. Ég borðaði því þangað til allt var búið. Hjónunum leist nú ekki á það að eiga ekki afganga svo daginn eftir var keypt enn meira og viti menn ég borðaði bara meira... svona gekk þetta þartil ég gat ekki staðið upp frá matarborðinu einn daginn. Á tveimur mánuðum þyngdist ég um 15 kg. og ég er enn að reyna að ná þeim af mér. Dóttir þeirra hefur þessa sömu tendensa, kaupa aðeins meira en nóg af öllu. Ég hef þurft að læra að hemja mig og það gengur svona misvel... þau eru nefnilega lista-kokkar bæði tvö, saman og í sitthvoru lagi.
Afmælis og garðurinn
Karlinn er mjög stoltur af garðinum sínum enda hefur hann eytt miklum tíma í að rækta hann upp og gera hann fallegan. Fljótlega eftir að ég flutti í húsið gat ég nú ekki annað en boðist til að taka að mér garðslátt og trjáklipperí til að hafa upp í leiguna. Ég sé enn þann dag í dag eftir því að hafa nokkurn tíma boðist til að taka þetta að mér. Garðurinn er um 1100 fm af grasi allur umlukinn trjám. Karlinn hefur að sjálfsögðu ekki staðið einn í því að koma upp fallegum garði, hann hefur leyft frúnni að sjá um kartöflurnar og svona þetta praktíska sem kannski er ekki alltaf það skemmtilegasta á meðan hann hefur verið að dúlla sér inní hlýju gróðurhúsinu. Dóttir hans er mjög svipuð í þessu, hún vill hafa þetta allt svona stórt og mikið eins og hjá pabba en fattar ekki að það þarf líka að vinna leiðinlegu vinnuna sem lendir þá á mér.
Afmælis og tölvan
Karlinn á í ástarsambandi ... með tölvunni sinni. Reyndar á hann allaveganna þrjár tölvur sem hann skiptist á að pikka í. En hver á ekki í ástarævintýrum við allaveganna þrjár á þessum aldri? Karlinn eyðir gríðar miklum hluta af tímanum sínum fyrir framan tölvuskjáinn. Mér finnst reyndar ekkert skrítið að ekki séu fleiri en tvö tölublöð á ári hjá Tannlæknablaðinu því ég hef séð karlinn og góð vin hans og kollega lemja inn hálfsíðugrein í blaðið og ef allir eru eins öruggir á lyklaborðið og þeir þá er ekki að sökum að spyrja. Þeir hittust kvöld eftir kvöld, ekki til að semja greinina því þeir voru löngu búnir að því, nei til að slá textann inn í tölvuna. Á einum tímapunkti hóaði karlinn í mig, sem hann gerir stundum ef hann á í vandræðum með elskurnar sínar, og ég kláraði að vélrita greinina fyrir þá á 2 mínútum eftir að hafa tekið Caps Lock af. Dóttir hans er hins vegar ekki þessi sami tölvufíkill en vandamálin sem ég þarf að leysa fyrir hana eru af svipuðum toga. Hún er samt verri að því leitinu til að lagfæringarnar þurfa að eiga sér stað strax, án tillits til þess hvort ég sé í sama landshluta eða ekki. Ég held stundum að hún haldi að það sé svona laga-takki í vinnunni hjá mér sem lagar allt sem böggar hana.
Afmælis og veiðin
Eins og þið öll vitið eflaust, hefur karlinn gríðarlegan áhuga á því að vaða ár landsins og lemja vatnsyfirborðið með bandspotta. Í minni sveit lögðum við bara net, vitjuðum síðar um daginn og veiddum alveg fullt... en nei hann þarf að reyna að veiða fiskinn með einum spotta... og það sem verra er, hann á það til að sleppa þeim. Hver er þá tilgangurinn með þessu? Allaveganna hann hefur greinilega mjög gaman að þessu og hefur haft frá blautu barnsbeini. Það eru til myndir af honum og einni þeirra hefur verið stillt upp við gestabókina - með stöngina í annarri og pínulítinn titt í hinni og drengurinn líklega ekki eldri en 10 vetra. Sumarið er því ekki tími tölvunnar hjá karlinum. Hann reyndi einu sinni að smita mig af þessari bakteríu, sendi mig á kastnámskeið til Ármanna og allt... ég náði bara ekki þessari 10 í 2vö sveiflu og spottinn liðaðist alltaf niður yfir hausinn á mér. Dóttir hans getur líka gripið í stöng. En þið skuluð passa ykkur því venjulega lemur hún bakkann meira en vatnið og þar að auki gefst hún ekkert upp og lætur stöngina ekkert af hendi ef hún á annað borð hefur fengið hana í hendurnar.
Karlinn og utanlandsferðir
Karlinn hefur ferðast um allan heim með fjölskylduna sína. Það er gaman að hlusta á þau rifja upp ævintýraferðir til Tahilands, Kína, Brasilíu, Ítalíu og fleiri staða. Skemmtilegra er þó að ferðast með honum. Hann hefur einstaklega gaman að því að skoða nýja staði og upplifa menningu annarra þjóða ekki síst matarmenningu. Það er líka aðdáunarvert að horfa uppá yfirvegun hans og einbeitni að ná sem mestum lit á sem skemmstum tíma. Karlinn getur legið tímunum saman út við sundlaugarbakka á sólríkum stöðum og lesið reifara og látið sólina létt steikja sig. Dóttir hans er svona líka... hún getur legið tímunum saman í sólinni og gert ekki neitt. Ég þarf alltaf að vera að gera eitthvað.
Karlinn og pólitíkin
Sá gamli er gallharður sjálfstæðismaður og hefur alltaf verið. Það varð því uppi fótur og fit þegar það uppgötvaðist að sá sem hér talar var í raun laumu-kommi... eða hann heldur því allaveganna fram. Þessi uppgötvun karlsins fékk mjög á hann og lengi vel vissi hann ekki alveg hvernig hann átti að snúa sér í þessu. Ekki vildi hann missa slátturmanninn og ekki vildi hann reka hann úr húsi og hryggbrjóta dóttur sína. Hann hefur því alltaf snúið þessari umræðu upp í grín. Ekki það að ég hafi nokkurn tíma gefið upp við nokkurn mann hvar ég stend í pólitík enda ekki mjög pólitískur einstaklingur. Dóttir hans er svona líka, blá í gegn.
Afmælis og Sorpa
Karlinn fer reglulega í Sorpu. Frúin fer nú líklegra oftar, en ef það þarf að fara með kerruhlöss af garðúrgangi eða stærri hlutum, þá brunar karlinn út í hraun með allt draslið. Þegar ég stóð í byggingarframkvæmdum tóku forráðamenn Sorpu upp á því að rukka fyrir hvern rúmmetra af rusli sem maður þurfti að losa sig við. Ég var eitthvað að kvarta yfir þessu við karlinn og hann skildi ekkert um hvað ég var að tala, hann hefur aldrei þurft að borga neitt. Ég ákvað því að fá hann með mér í eina ferð til að sjá hvernig hann færi að. Venjulega stoppar maður í afgreiðslunni til að fá leiðbeiningar um hvert maður á að fara með ruslið, en ekki sá gamli, hann hefur farið svo oft að hann veit hvar allir gámarnir eru... fyrir utan að ef hann er ekki að fara með garðúrgang þá fer allt í blandaða gáminn hjá honum hvort eð er. Karlinn brunaði því á jeppanum upp á rampinn, við stukkum út og hentum af okkur ruslinu. Á leiðinni út segir hann svo: Sko, maður þarf ekkert að borga það eina sem þarf að gera er að vera í skítagallanum með lekandi hor og á 5 milljón króna jeppa og þá sleppa þeir manni alveg. Dóttir hans fer ekki á Sorpu.
Afmælis og íþróttir
Karlinn er mikill íþróttamaður. Hann hefur í gegnum tíðina spilað hnit með félögum sínum á veturna og staðið á höndum fyrir barnabörnin á sumrin. Hann hefur reyndar ekkert brennandi áhuga á að horfa á knattleiki, en ef hann sest fyrir framan leik, þá verður honum ekki haggað fyrr en í leikslok. Hann veit reyndar ekkert endilega hverjir eru að spila og algeng spurning er: Hverjir eru rauðir?. Í vor skráðum við okkur saman á karlanámskeið í einni líkamsræktarstöð bæjarins. Þetta var hluti af því að ná af sér þessum 15 kg. sem ég bætti á mig á þessum 2veim mánuðum fyrir 11 árum. Ég var nú ekki alveg viss hvernig þetta færi allt saman, sá karlinn einhvern veginn ekki fyrir mér hoppandi í erobikk tímum eða lyfta lóðum í klukkutíma 3svar í viku. Karlinn er nú bara þannig gerður að ef hann er búinn að bíta eitthvað í sig eða taka að sér einhver verkefni, þá hættir hann ekkert við heldur klárar dæmið og það gerði hann með stæl. Það var því mér til mikils happs að hafa hann með það voru fá tækifæri til að svindla eða skrópa karlinn hringdi alltaf klukkutíma fyrir tíma til að tryggja að ég kæmi örugglega. Dóttir hans er svona líka ef hún bítur eitthvað í sig eða tekur að sér einhver verkefni þá er ekki staðið upp frá því hálfkláruðu.
Afmælis og barnabörnin
Karlinn er mikill barna-karl. Það er aðdáunarvert að fylgjast með öllum barnaskaranum hlaupa upp um hálsinn á karlinum og fagna honum eins og þjóðhöfðingja í hvert sinn sem þau hitta hann. Afi og amma eru alltaf aufúsu gestir á heimili okkar. Hann er líka snöggur til að samþykkja það að passa sílin þegar við unga fólkið þurfum á að halda. Hann veit líka að frúin sér um að vakna á nóttunni ef það er vesen og eldsnemma á morgnanna þegar barnatíminn byrjar.
Afmælis og frúin
Ég held að við getum öll verið sammála um að karlinn er vel giftur maður. Frúin stendur eins og klettur við hlið hans og hann er nú eiginlega hálfónýtur ef hennar nýtur ekki við. Ef við rifjum aðeins upp það sem á undan er komið í ræðunni.
- Eldamennskan hann gæti náttúrulega ekki staðið dag eftir dag í eldhúsinu ef frúin sæi ekki um að fara útí búð, leggja á borð og ganga frá.
- Garðurinn hann ætti ekki svona fallegan garð ef frúin sæi ekki um að reita arfann, hreinsa beðin eða borgaði núverandi sláttur- og trjáklippimönnum.
- Tölvan hann gæti ekki setið endalaust fyrir framan tölvuna ef frúin væri ekki þessi þolinmóða og skilningsríka týpa.
- Veiðin frúin fer með bónda sínum í alla veiðitúra. Hún veiðir ekki mikið sjálf en hún sér til þess að veita honum félagsskap í pásunum og bíltúrunum milli veiðistaða.
- Utanlandsferðir hann færi ekki til útlanda ef frúin krefðist þess ekki að fá allaveganna eina viku á sumri í frí frá vinnu og veiðum.
- Pólitíkin frúin er bandamaður karlsins í pólitík og saman geta þau spjallað um óslitna sigurgöngu Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.
- Sorpa karlinn myndi ekki vita hvað Sorpa væri ef frúin hefði ekki kynnt honum ótvíræða kosti þess fyrirtækis.
- Íþróttir frúin sér til þess að kaupa viðeigandi íþróttadress fyrir hverja grein, hún heldur fötunum hreinum, sendir hann með handklæði og hreinar nærbuxur og passar uppá að ekkert gleymist. Ef frúin pakkar ekki í töskuna, mætir hann með hana tóma... honum dettur ekki í hug að tékka sjálfur hvort allt sé með.
- Barnabörnin við þurfum ekkert að ræða hlut frúarinnar í þeim efnum.
Kæru hjón ég vil enda þetta á því að þakka fyrir allt sem þið hafið gert fyrir mig og fjölskyldu mína í gegnum tíðina og óska ykkur til hamingju með daginn.
Athugasemdir
Massa skemmtileg ræða hjá þér vinurinn minn, það kemur bara til greina að bjóða þér í sextugs afmælið eftir að hafa lesið þetta... Lunch í næstu viku?
Darri (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 13:00
Góður :)
Þrási frændi (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 10:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.